Færsla frá Gunnari Axel um Byr - Ótrúlegt athæfi eigenda

Nokkrar ískaldar staðreyndir um Byr sparisjóð

1. Samkvæmt árshlutauppgjöri Byrs fyrir fyrri hluta árs 2008, ákváðu stofnfjáreigendur í Byr í ágúst sl. að greiða sjálfum sér tæpa 13,5 milljarða í arð fyrir árið 2008. Þetta gerðu þeir þrátt fyrir að árið væri aðeins hálfnað og mikil óvissa ríkti á fjármálamörkuðum heimsins. Ekki veit ég til þess að þessi ráðstöfun eigi sér neina hliðstæðu í rekstri fyrirtækis að þessari stærðargráðu á Íslandi, enda eru arðgreiðslur vanalega ákvarðaðar í tengslum við ársuppgjör fyrirtækja og taka mið af afkomu þeirra. Það hlýtur að teljast mjög svo sérstakt að þegar allar fjármálastofnanir vinna hörðum höndum að því að styrkja eiginfjárstöðu sína vegna sífellt versnandi aðstæðna á fjármálamörkuðum, þá skuli stjórnendur Byrs gera hið gagnstæða og draga þannig verulega getu sjóðsins til að standa af sér áföll.

Arðgreiðslan var greidd útaf svokölluðum varasjóði, sem allt þar til nú hefur verið haldið sérstaklega til haga í bókhaldi sparisjóðanna og ekki talin eign stofnfjáreigenda.

Í útgefendalýsingu frá Byr sparisjóði frá því í nóvember 2007 má t.d. lesa eftirfarandi:

Eigið fé sparisjóðsins skiptist í varasjóð annars vegar, sem myndar bróðurpart þess, og hins vegar í stofnfé. Varasjóður er bundinn í sparisjóðnum. Stofnféð er hins vegar háð sérgreindum eignarréttindum stofnfjáreigendanna. Eignarhaldi á stofnfé fylgir engin eignarhlutdeild í varasjóði, gagnstætt því sem gildir um hlutafélög, heldur er stofnfjáreigendum aðeins falin stjórn þess. Þeim er í raun trúað fyrir því í almannaþágu. Lög reisa sérstakar skorður við því að hvaða marki umbuna má stofnfjáreigendum af eigin fé sparisjóðsins. Til að mynda er það utanaðkomandi aðili, Tryggingasjóður sparisjóða, sem setur þak á heimildir til útborgunar á arði hvers árs.

Með þessari aðgerð, sem hlýtur að teljast dæmalaus með öllu, lækkaði eiginfjárhlutfall Byrs verulega, enda var þarna um að ræða stóran hluta af eigin fé sjóðsins, sem núverandi valdhafar ákváðu að taka út úr rekstrinum og færa sjálfum sér. Fjármálaráðherra landsins, Árni M. Mathisen er í hópi stofnfjáreigenda Byrs en hann hefur ekki viljað upplýsa um hversu stór eignarhlutur hans er.

 2. Í fréttum af fyrirhugaðri hlutafélagavæðingu Byrs sem birtust víða í íslenskum fjölmiðlum fyrr á árinu var sagt að við breytinguna yrði stofnuð sérstök sjálfseignarstofnun sem fara bæri með hinn áður nefnda varasjóð. Ætti stofnunin að styðja við menningar- og líknarmál eins og eldri samþykktir sjóðanna höfðu ávallt gert ráð fyrir. Var staða umrædds varasjóðs þá í kringum 25 milljarðar króna og Byr í heild metinn á liðlega 58 milljarða. Af góðmennsku sinni ákváðu stofnfjáreigendur að ráðstafa sem nemur 6,4% af verðmæti fyrirtækisin í þessa verlferðarstofnun, þ.e. um 3,8 milljörðum króna. Um þetta má t.d. lesa í þessari frétt frá Kaupþingi frá 26. ágúst sl.

Velferðarsjóðurinn Byr Ses. var vissulega stofnaður og má sækja samþykktir hans hér. Í þeim er þó erfitt að sjá að um sama sjóð sé að ræða og vitnað er til í ofangreindri frétt, enda er stofnfé sjóðsins aðeins 1. milljón króna og tilgangur sjóðsins virðist fyrst og síðast vera að stuðla að vexti og viðgangi Byrs hf, eins og segir orðrétt í 3. grein samþykktanna. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir um frekari upplýsingar sem varða velferðarsjóðinn, s.s. hvort einhverjir fjármunir umfram þessa eina milljón séu í sjóðnum og þá í hverskonar eignum, hafa engin svör borist frá stjórnendum Byrs.

Meira um þetta mál síðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

SteinríkurKrati

Höfundur

Steinríkurkrati
Steinríkurkrati
fjölskyldumaður, eilífðarkrati, gaflari og hrokagikkur
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband